Nýlega lauk Óskar Guðlaugsson BS gráðu í landfræði. Lokaritgerð hans, „Makaval og heimabyggð. Uppruni hjóna samkvæmt manntali 1845“, byggir á gögnum manntalsins 1845, sem Þjóðskjalasafn veitti Óskari aðgang að til rannsóknarvinnu.
Í undirbúningi er samnorræn ráðstefna um miðlun gagna í skjalasöfnum (Nordisk arkivformidlingskonferanse 2013) sem til stendur að halda í Olsó í Noregi dagana 24.-25. október 2013. Að ráðstefnunni standa Norsk kulturråd, Landslaget for lokal- og privatarkiv og Riksarkivaren (embætti norska ríkisskjalavarðarins) í samstarfi við samnorrænt fagráð.
Alþjóðlega skjaladaginn ber upp á sunnudag þetta árið, en þá eru skjalasöfn víðsvegar um heiminn með tildragelsi af ýmsu tagi til að vekja athygli á mikilvægi skjalasafna, sem eru minni heimsins um liðna atburði og vörslustaðir skjala sem varða réttindi borgaranna.
Þjóðskjalasafn Íslands hefur samþykkt málaleitan Landssambands íslenskra frímerkjasafnara að lána til norrænu frímerkjasýningarinnar NORDIA 2013 veglegan hluta af frímerkjasafni því sem er í vörslu þess. Um er að ræða afar fágæt og ómetanleg frímerkt umslög og bréf sem ekki hafa komið fyrir almenningssjónir áður og eru sum þeirra þau elstu sem varðveist hafa hérlendis. Eiríkur G.
Sámal Tróndur Finnsson Johansen landsskjalavörður Færeyja og Annika Skaalum starfsmaður Landsskjalasafnsins heimsóttu Þjóðskjalasafn Íslands í gær og áttu fund með þjóðskjalaverði og starfsmönnum safnsins um verkefni Þjóðskjalasafns á sviði manntalsgrunna og skráningu sóknarmannatala.
Út er komið fyrsta tölublað Nordisk Arkivnyt á þessu ári. Í blaðinu er m.a. umfjöllun um átaksverkefni Félags héraðsskjalavarða á Íslandi og Íþrótta- og ólympíusambands Íslands um söfnun íþróttaskjala, gildistöku nýrra upplýsingalaga á Íslandi og sagt frá skipun nýs þjóðskjalavarðar. Einnig eru í blaðinu fréttir og frásagnir af starfsemi skjalasafna á öllum Norðurlöndunum.
Skjalafréttir er fréttabréf Þjóðskjalasafns sem birtir tilkynningar og fréttir sem tengjast opinberri skjalavörslu, upplýsingar um námskeið og fjölbreyttan fróðleik sem tengist skjalavörslu almennt.
Við hvetjum ykkur til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar þið komið til okkar.
Hjólabogar eru við aðalinnganginn og við lestrarsalinn.
Hlemmur er í 5 mínútna göngufjarlægð og strætisvagnar 2, 5, 14, 15 og 17 stansa fyrir framan.
Heimild mánaðarins
Frelsi í farvatninu? Magnús Ketilsson skrifar um Íslandsverslun á tímamótum veturinn 1783
Á Þjóðskjalasafni Íslands eru fjölmörg bréf sem embættismenn skrifuðu til Christians Martfelt (1728–1790), hagspekings og ritara danska landbústjórnarfélagsins í Kaupmannahöfn. Martfelt bar í brjósti háleitar vonir um að Ísland gæti komist í hringiðu alþjóðlegrar verslunar. Magnús Ketilsson (1732–1803), sýslumaður í Dalasýslu, skrifaði langa greinargerð um verslunar- og efnahagsmálefni Íslands, „Pro Memoria!“, til Martfelts veturinn 1783.