Í undirbúningi er samnorræn ráðstefna um miðlun gagna í skjalasöfnum (Nordisk arkivformidlingskonferanse 2013) sem til stendur að halda í Olsó í Noregi dagana 24.-25. október 2013. Að ráðstefnunni standa Norsk kulturråd, Landslaget for lokal- og privatarkiv og Riksarkivaren (embætti norska ríkisskjalavarðarins) í samstarfi við samnorrænt fagráð.
Á ráðstefnunni er stefnt að því að greina stöðu miðlunar þess safnkosts sem í skjalasöfnum norðurlandanna býr. Hvaða árangri hefur þegar verið náð? Hvert skal stefna? Hvert liggja mikilvægustu straumarnir og hverjir eru miðlarnir? Hvers er vænst af skjalasöfnum sem stofnunum í samfélaginu og hvaða hlutverki eiga skjalasöfnin að gegna í samfélaginu?
Á ráðstefnunni verða eftirtalin þemu til umfjöllunar:
- Stafræn þjónusta og stafræn miðlun.
- Skjalasafnið sem uppspretta menningartengdrar starfsemi, skapandi greina og þróunar.
- Skjalasafnið sem áfangastaður og rými á öld rafrænna gagna.
- Þátttaka almennings og félagsleg meðvitund skjalasafna.
Hluti erindanna á ráðstefnunni mun verða gefinn út í greinasafni um miðlun skjalfræðilegs efnis.
Hér má sækja auglýsingu á norsku (804 Kb) um ráðstefnuna.
Vilt þú taka þátt?
Gætir þú hugsað þér að halda erindi á ráðstefnunni eða birta grein í greinasafninu? Erindið (20 mínútur) eða greinin má gjarnan vera samantekt á þema, umræða um rannsóknarspurningu eða kynning á góðu verkefni. Lýsing á erindinu eða greininni (400 orð á norðurlandamáli) sendist fyrir 15. júní á netfangið ranveig.gausdal@kulturrad.no.