Dagskrá Þjóðskjalasafns Íslands
í lestrarsal safnsins að Laugavegi 162
föstudaginn 8. febrúar 2013
19:00-24:00 | Skjalasýning. Sýnishorn þeirra skjala sem fyrirlestrar kvöldsins byggjast á. |
19:00-24:00 | Reyndu að skrifa og lesa gamla skrift. Verðlaunagetraun. |
19:00-24:00 | Áttu merkileg skjöl? Eiga þau erindi á safn? Komdu og láttu sérfræðinga Þjóðskjalasafns kanna gildi þeirra. |
19:00-24:00 | Ættfræðihornið: Finndu forfeður í kirkjubókum með aðstoð sérfræðinga Þjóðskjalasafns. |
19:30-20:00 | Ferð um skjalageymslur Þjóðskjalasafns og kynning á starfsemi safnsins.* |
20:30-21:00 | Ferð um skjalageymslur Þjóðskjalasafns og kynning á starfsemi safnsins.* |
21:15-21:45 |
Benedikt Eyþórsson, sagnfræðingur og skalavörður: Sólborg og sýslumaðurinn. „Sólborgarmálið“ frá 1893 rifjað upp í máli og myndum. Svipleg örlög hálfsystkinanna,Sólborgar og Sigurjóns á Svalbarði í Þistilfirði er eitt þekktasta sakamál 19. aldar. Systkinin voru ákærð fyrir að hafa borið út barn sitt. Skáldið Einar Benediktsson, settur sýslumaður Þingeyinga, rannsakaði málið og kvað upp dóm í héraði. |
21:45-22:15 |
Guðný Hallgrímsdóttir, doktorsnemi í sagnfræði: Kokkastúlka og kærasta í kaupstað. Rakin verður ævisaga vinnukonu sem meðal annars starfaði hjá dönskum kaupmönnum á Akureyri undir lok 18. aldar og átti í leynilegu ástarsambandi með þekktum dönskum kaupmanni. |
22:30-23:00 | Ferð um skjalageymslur Þjóðskjalasafns og kynning á starfsemi safnsins.* |
*Athugið að 20 manns komast í hverja skoðunarferð. Skráðu þig á staðnum.