föstudagur, 10. mars 2017 - 13:45
Egill Helgason, sjónvarpsmaðurinn góðkunni, heimsótti Hrefnu Róbertsdóttur sagnfræðing og sviðsstjóra í Þjóðskjalasafn á dögunum og spjallaði við hana um útgáfu bókanna um skjöl Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 og skoðaði ýmis skjöl sem tengjast útgáfu bókanna. Viðtalið var sýnt í þætti Egils, Kiljunni, miðvikudaginn 8. mars sl.
Hrefna er ritstjóri bókanna um skjöl Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 ásamt Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur.
Fyrri umfjöllun um útgáfuna á vef Þjóðskjalasafns:
- Landsnefndin fyrri 1770–1771 tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis 2016 (3. febrúar 2017).
- Skjöl landsnefndarinnar 1770-1771 - ráðstefna (8. nóvember 2016).
- Fyrsta bindi skjala Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 komið út (27. apríl 2016).
- Útgáfa skjala Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 (18. nóvember 2015).
Viðtal Egils við Hrefnu Róbertsdóttur í Kiljunni 8. mars 2017.