19:00-24:00 | Skjalasýning Sýnishorn skjala sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni og tengjast viðfangsefni kvöldsins; flökkurum, förufólki og flóttamönnum auk skjala og heimilda til ættfræðirannsókna.. |
19:00-24:00 | Hverra manna ert þú? Kynning á starfsemi ættfræðifélagsins. Fulltrúar félagsins verða á lestrarsalnum og kynna starfsemi félagsins, sýna ættrakningar og ættargripi og kynna ættfræðiforritið Espólín. – Lestrarsalur. |
19:00-24:00 | Er flakkari í fjölskyldunni? Ættfræðigrúsk og fjölskyldusaga. Sérfræðingar safnsins og ættfræðifélagsins leiðbeina við heimildaleit. –Lestrarsalur. |
19:00-19:30 | Vasaljósaferð í geymslurnar Skjalageymslur Þjóðskjalasafns eru stórar og dimmar og þar eru mörg leyndarmál. Taktu með þér vasaljós og komdu með í leiðangur. Athugið að 20 manns komast í hverja ferð, skráning á staðnum og á vef safnsins. – Mæting á lestrarsal. |
20:00-20:30 | Vasaljósaferð í geymslurnar Skjalageymslur Þjóðskjalasafns eru stórar og dimmar og þar eru mörg leyndarmál. Taktu með þér vasaljós og komdu með í leiðangur. Athugið að 20 manns komast í hverja ferð, skráning á staðnum og á vef safnsins. – Mæting á lestrarsal. |
20:30-20:50 | „Utangarðsfólk leitað uppi í heimildum á Þjóðskjalasafni“ Halldóra Kristinsdóttir og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir fjalla um utangarðsfólk og förufólk á Vesturlandi og Vestfjörðum. – Gengið inn um aðalinngang í portinu. |
21:00-21:20 | „Allsstaðar er flóttamaðurinn einmanna“ Harpa Björnsdóttir myndlistamaður fjallar um leit sína að heimildum um Sölva Helgason. – Gengið inn um aðalinngang í portinu. |
21:30-21:50 | Alltaf þynnist út í kyn... Guðfinna S. Ragnarsdóttir menntaskólakennari og ritstjóri fréttabréfs Ættfræðifélagsins flytur erindi um hvernig þeim mikla fjölda Íslendinga vegnaði sem hélt vestur um haf á seinni hluta 19. aldar. Þeir flýðu illt árferði, sult og seyru og algert vonleysi. – Gengið inn um aðalinngang í portinu. |
22:30-23:00 | Vasaljósaferð í geymslurnar Skjalageymslur Þjóðskjalasafns eru stórar og dimmar og þar eru mörg leyndarmál. Taktu með þér vasaljós og komdu með í leiðangur. Athugið að 20 manns komast í hverja ferð, skráning á staðnum og á vef safnsins. – Mæting á lestrarsal. |