Þjóðskjalasafn Íslands úthlutar til héraðsskjalasafna verkefnastyrkjum til skönnunar og miðlunar valdra skjalaflokka. Markmið verkefnastyrkjanna er að stuðla að skönnun og miðlun heimilda á héraðsskjalasöfnum. Öll héraðsskjalasöfn geta sótt um þessa verkefnastyrki. Til úthlutunar árið 2021 eru 16.300.000 kr.
Hér að neðan er að finna reglur um úthlutun verkefnastyrkja til héraðsskjalasafna vegna skönnunar- og miðlunarverkefna, almenna skilmála til þeirra sem fá úthlutað styrkjum og eyðublað fyrir styrkumsóknir. Hægri smellið á heiti skjalsins og veljið „Save link as...“ eða „Save target as...“.
- Reglur um úthlutun styrkja til skönnunar og miðlunar (PDF, 109 KB).
- Almennir skilmálar fyrir verkefnastyrk (PDF, 111 KB).
- Umsóknareyðublað vegna styrks til skönnunar og miðlunar (Word, 109 KB).
- Eyðublað fyrir lokaskýrslu um skönnunarverkefni (Word, 49 KB).