þriðjudagur, 24. mars 2020 - 12:45
Í kjölfar samkomubanns stjórnvalda hefur verið ákveðið að takmarka starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands og hafa aðgerðirnar áhrif á þjónustu safnsins við almenning og afhendingarskylda aðila. Þjónusta Þjóðskjalasafns verður frá og með þriðjudeginum 24. mars til og með 12. apríl 2020 með eftirfarandi hætti:
- Lestrarsalur verður lokaður.
- Afgreiðsla safnsins verður lokuð.
- Ekki verður tekið við skjalasöfnum, bæði einkaskjalasöfnum og skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila.
- Skjalaumbúðir verða ekki afgreiddar til viðskiptavina.
- Allir fundir með skjalavörðum og sérfræðingum safnsins verða í gegnum síma eða fjarfundabúnað.
Áfram er tekið við fyrirspurnum og erindum í gegnum síma, tölvupóst og bréfpóst og verður afgreiðsla mála á sama hátt eftir því sem við verður komið. Fyrirspurnir og erindi skal senda á upplysingar@skjalasafn.is eða hafa samband í síma 590 3300 milli kl. 9 og 14 virka daga.