Laugardaginn 12. nóvember verður haldin ráðstefna í Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, um skjöl landsnefndarinnar fyrri 1770-1771. Ráðstefnan fer fram á Norræna skjaladeginum og er haldin í tilefni af því að um þessar mundir kemur út annað bindið af sex í heildarútgáfu á skjölum landsnefndarinnar, en útgáfan er samstarfsverkefni Þjóðskjalasafns Íslands, Sögufélags og Ríkisskjalasafns Danmerkur. Við þetta tækifæri verður einnig opnaður vefur þar sem frumskjöl nefndarinnar eru birt. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson opnar ráðstefnuna, sem stendur frá kl 13:00-17:00. Dagskrá ráðstefnunnar er hér að neðan og einnig má hlaða henni niður á PDF formi.
Á sama tíma verða sýnd skjöl sem tengjast umfjöllunarefni Norræna skjaladagsins sem ber yfirskriftina: „Til hnífs og skeiðar“. Þar verða sýnd skjöl sem tengjast matvælaöflun, úrvinnslu matvæla eða jafnvel skorti á matvælum.
Allir eru velkomnir á ráðstefnuna og sýningu safnsins og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá ráðstefnunnar
Kl 13:00 | Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson setur ráðstefnuna og flytur ávarp. |
Kl 13:15 | Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður kynnir landsnefndarverkefnið og annað bindi skjalanna. Rigsarkivar Asbjørn Hellum opnar vefinn landsnefndin.is. |
Kl 13:30-14:50 | Forelæsninger på dansk - fyrirlestrar á dönsku.
|
Kaffihlé | |
Kl 15:00-16:00 | Fyrirlestrar á íslensku - forelæsninger på islandsk.
|
Stutt hlé | |
Kl 16:10-17:00 | Fyrirlestrar á íslensku, framhald - forelæsninger på islandsk, fortsat.
|
Dagskráin á PDF formi (227 KB).