föstudagur, 22. ágúst 2014 - 14:45
Sigurður Guðmundsson, myndlistamaður og rithöfundur, afhenti nýverið Þjóðskjalasafni Íslands filmur ljósmyndaverka sinna til varanlegrar varðveislu. Ljósmyndaverkin vann Sigurður á árunum 1970 til 1982 og bera þau samheitið Situations. Verkin eru vel kunn og mikilvæg verk í íslenskri listasögu og hafa verið sýnd um allan heim auk þess sem mörg þeirra eru í eigu listasafna bæði í Evrópu og Norður-Ameríku.
Afhendingin fór fram 20. ágúst síðastliðinn og jafnframt var undirritaður samningur um aðgangstakmarkanir. Eiríkur G. Guðmundsson, þjóðskjalavörður, tók við safninu fyrir hönd Þjóðskjalasafns Íslands.
Ítarefni
- Grein um Sigurð Guðmundsson og Situations í The Guardian árið 2003.
- The Visual Poetry of Sigurdur Gudmundsson, grein Kremena Nikolova-Fontaine um sýninguna „Situations and Other Photo Works 1970-1982“ sem fór fram í Gallerí i8 í Reykjavík sumarið 2010.