fimmtudagur, 17. mars 2011 - 14:15
Föstudaginn 25. mars nk. mun Þjóðskjalasafn Íslands í samstarfi við Félag um skjalastjórn standa fyrir ráðstefnunni Horft til framtíðar - varðveisla og aðgengi upplýsinga. Ráðstefnan verður á Grand hótel í Reykjavík og stendur frá kl. 13-16. Sérstakur gestafyrirlesari verður Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur. Dagskrá ráðstefnunnar er hér fyrir neðan. Upplýsingar um skráningu og ráðstefnugjald má finna á vef Félags um skjalastjórn [síðan sem vísað er til hefur verið fjarlægð af vef Félags um skjalastjórn].
12:30 - 13:00 | Móttaka ráðstefnugesta |
13:00 - 13:05 | Sólveig Magnúsdóttir, formaður Félags um skjalastjórn setur ráðstefnuna |
13:05 - 14:05 |
Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur. „Archives and Record Management - a Danish Perspective“. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku |
14:05 - 14:45 |
Unnur Birna Karlsdóttir, skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands. „Varðveisla og grisjun. Reglur, framkvæmd og framtíðarsýn“. |
14:45 - 15:05 | Kaffihlé (kaffi og meðlæti innifalið í ráðstefnugjaldi) |
15:05 - 15:55 |
Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands. „Upplýsingaréttur almennings og skylda stjórnvalda til að varðveita gögn með aðgengilegum hætti“. |
15:55 - 16:00 | Ráðstefnuslit |
Fundarstjóri er Ásdís Paulsdóttir