Þann 1. desember sl. tók gildi gjaldskrá um þjónustu Þjóðskjalasafns Íslands. Með gjaldskránni hefur Þjóðskjalasafn nú heimild til að taka gjald fyrir tiltekna þjónustu og byggir gjaldskráin á heimild í lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og reglugerð nr. 1236/2021 um gjaldskrá Þjóðskjalasafns. Í gjaldskránni er kveðið á um gjald fyrir eftirfarandi þjónustu Þjóðskjalasafns:
- Gjald fyrir ljósritun og afritun gagna úr safnkosti.
- Gjald fyrir kostnað sem fellur til við að veita aðgang að þrotabúum og öðrum óskráðum og óflokkuðum skjalasöfnum.
- Gjald fyrir móttöku, frágang og flutning skjalasafna afhendingarskylds aðila sem hefur hætt starfsemi eða verið lagður niður.
- Gjald fyrir varðveislu pappírsskjala afhendingarskyldra aðila sem eru yngri en 30 ára.
- Gjald fyrir varðveislu skjala sveitarfélaga.
- Gjald fyrir varðveislu og eyðingu á skjölum þrotabúa.
Gagnvart notendum safnkosts Þjóðskjalasafns verður tekið gjald fyrir afrit af skjölum sem starfsfólk safnsins tekur fyrir viðskiptavini. Þá er jafnframt heimild í gjaldskránni til að taka gjald fyrir kostnað sem fellur til við að veita aðgang að þrotabúum og öðrum óskráðum og óflokkuðum skjalasöfnum, s.s. vegna vinnu starfsfólks við leit í þess háttar skjalasöfnum og afritun skjala.
Gagnvart afhendingarskyldum aðilum mun Þjóðskjalasafn taka gjald fyrir varðveislu pappírsskjala sem eru yngri en 30 ára gömul. Með gjaldinu getur safnið því mætt kostnaði sem til fellur við varðveislu yngri pappírsskjala þar til þau hafa náð 30 ára aldri en almennt eiga afhendingarskyldir aðilar að varðveita pappírsskjöl þar til þau hafa náð þessum aldri. Því er nú möguleiki að Þjóðskjalasafn taki við yngri pappírsskjölum til varðveislu í einstökum tilvikum ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga um opinber skjalasöfn. Vörslugjald fyrir skjöl yngri en 30 ára gömul er greitt árlega samkvæmt samningi sem gerður er við hvern afhendingarskyldan aðila. Athygli er vakin á því að vörslukostnaður fyrir pappírsskjöl sem eru yngri en 30 ára frá afhendingarskyldum aðilum sem hafa verið lagðir niður skal greiddur af því ráðuneyti eða sveitarfélagi sem viðkomandi aðili heyrði undir.
Þá munu sveitarfélög sem afhenda skjöl til varðveislu á Þjóðskjalasafn ávallt greiða fyrir varðveislu gagnanna óháð aldri þeirra. Einnig munu skiptastjórar þrotabúa greiða fyrir varðveislu skjala þrotabúa í sjö ár frá skiptalokum og fyrir eyðingu þeirra að varðveislutíma loknum. Vörslugjald þrotabúa greiðst í einu lagi fyrir sjö ár frá skiptalokum þegar safnið er afhent Þjóðskjalasafni til vörslu.
Einnig er Þjóðskjalasafni heimilt að taka gjald fyrir móttöku, frágang og flutning skjalasafna afhendingarskylds aðila sem hefur hætt starfsemi eða verið lagður niður.
Gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands: https://skjalasafn.is/gjaldskra