föstudagur, 23. október 2020 - 16:45
Fimmta bindi ritraðarinnar um Landsnefndina fyrri 1770-1771 er komið út. Í tilefni af því verður haldin útgáfuhátíð, sem að þessu sinni verður í beinni útsendingu á Facebook.
Útgáfuhátíðin verður þriðjudaginn 27. október klukkan 15:00-16:00.
Dagskrá:
- Hrefna Róbertsdóttir:
Þremenningarnir í Landsnefndinni. Hugmyndir, úrvinnsla og tillögur. - Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir:
Kostnaður konungs vegna Landsnefndarinnar fyrri. - Helga Hlín Bjarnadóttir:
Húsagi og landsagi í uppkasti Þorkels Fjeldsteds að landsagatilskipun.